|
|
26.04.2008 17:28:51 / berglingur
Jæja nú virðist sem sumarið sé að koma í Bretlandi, ég hélt að það væri að gerast um daginn en svo varð bara kalt aftur og rigning. Ég vona samt að með því að segja að það sé komið núna sé ég ekki að eyðileggja það, leggja bölvun á sólina og sumarið. Það er allavega búið að vera alveg rosalega gott veður í dag, ég og Jóhannes fórum í bæinn aðeins að spóka okkur í góða veðrinu, ég ætlaði að finna mér sumarjakka og skó en kom tómhent heim. Skórnir sem ég ætlaði að kaupa voru hvergi til í mínu númeri  og hvað er málið með að finna hvergi jakka, ég fór búð úr búð og fann engann einasta jakka (jú það voru ljótir jakkar í nokkrum búðum en sums staðar enginn) gengur enginn hérna í jakka á sumrin, hvað er málið!!! Annars er allt að gerast hjá mér núna í vinnunni, ég er loksins að fara að byrja í þjálfun sem klínískur lyfjafræðingur núna á mánudaginn. Í næstu viku verð ég fyrri partinn í þjálfun við að blanda sterílar lyfjalausnir í æð (IV) og svo eftir hádegi verð ég á lyflækningardeildum í þjálfun. Þetta er ekkert smá spennandi!!! Ég á samt eftir að fara aftur í afgreiðsluapótekið, nú er það þannig að við eigum eftir að skipta deginum niður með okkur þannig að við verðum 1-2 klst í senn í afgreiðsluapótekinu þannig að það verður fínt. Síðan erum við ennþá að bíða eftir að hlutirnir komi á hreint með íbúðarmál, núna eru tvær íbúðir sem koma til greina, önnur hérna í Beeston og hin rétt hjá spítalanum í Derby. Vandamálið er reyndar að það er miklu skynsamlegra að taka íbúðina í Derby, bæði nær vinnunni hjá mér og líka ódýrari, en.... þessi sem er hérna í Beeston er svo frábær, hún er svo fín og flott og með útsýni yfir hverfið... allavega langar okkur mikið frekar í hana þrátt fyrir allt!! Þetta á vonandi allt saman eftir að koma í ljós fljótlega. Ég hef ekkert meira að segja í bili, ég mun leyfa ykkur (sem hafið áhuga) að fylgjast með þjálfuninni minni á spítalanum og hvaða íbúð við veljum. Endilega skrifið eitthvað komment ef þið eruð að lesa, bara svo ég viti hvort allir hafi gefist upp á mér þegar ég var svona löt að skrifa, bara til að vita að það séu einhverjir að lesa. Þangað til næst Kveðja Berglind klínískur lyfjafræðingur í Derby
»
24.03.2008 20:48:14 / berglingur
Nú er orðið allt of langt síðan ég skrifaði nokkuð hér síðast!! Nú ætti það frekar að vera gleðilega páska Það er allavega búið að vera alveg rosalega mikið að gera hjá mér undanfarið þannig að ég tel mig hafa ágætis afsökun.
Eins og kom fram í síðasta bloggi hjá mér þá er ég farin að vinna á spítala í Derby í afgreiðsluapóteki... það kemur reyndar ekki til með að vera mikið lengur þar sem ég er komin með nýja vinnu!! eða kannski öllu heldur stöðuhækkun Ég er sem sagt komin með stöðu sem klínískur lyfjafræðingur á spítalanum í Derby og kem til með að byrja í klínísku diploma námi í janúar 2009 (tek það á 18 mánuðum með vinnu). Ég er reyndar ennþá í afgreiðsluapótekinu en fer að byrja í þjálfun á deildum eftir 1-2 vikur og svo þjálfun fyrir vaktavinnu í júlí (byrja sem sagt að vinna á vöktum í ágúst). Þetta er allt saman mjög spennandi og ég get ekki beðið með að byrja formlega í nýja starfinu!!! Mér líkar mjög vel á spítalanum, mjög spennandi að vera í svona klínísku umhverfi. Það eru lyfjafræðingar á nánast öllum deildum spítalans, þetta skiptist aðallega í tvennt lyflækningasvið og skurðlækningar, innan hvers sviðs eru síðan margar mismunandi deildir og ég kem til með að rótera á milli þeirra (3 mánuði í senn). Auk þessa eru síðan krabbameinssvið og barnadeild og ég kem til með að vera í 3 mánuði á öðru hvoru þeirra (ég bað um að fá barnalækningar og vona að það gangi eftir) en það verður ekki fyrr en á seinna árinu (þetta er s.s. allt saman til 2ja ára). Ég hlakka rosalega til að byrja á þessu öllu saman, finnst þetta ekkert smá spennandi!!!! Einn böggur á þessu öllu saman er reyndar hvað ég er lengi að komast í vinnuna, þó þetta sé ekkert lengra en að ferðast frá Reykjavík til Hafnafjarðar tekur það mig næstum því einn og hálfan tíma að komast til og frá vinnu (3 tíma á dag) þannig að ég er alveg uppgefin þegar ég kem heim!! Við stefnum reyndar á að fá okkur bíl, allavega áður en ég fer að vinna vaktirnar, því þá er ég stundum að vinna til 23 (eða jafnvel lengur) og svo á næturvöktum 23-8.30, og á þeim tímum borgar sig ekkert að treysta á lestirnar eða bara vera mikið á ferðinni ein á þeim tíma. En þetta kemur samt allt saman í ljós!!!! Annað mál á dagskrá eru íbúðarmál, en það stendur víst til að selja íbúðina sem við erum að leigja þannig að við þurfum að finna okkur nýjan stað til að vera á. Það er samt allt saman í vinnslu og kemst vonandi flótlega á hreint, skal leyfa ykkur að fylgjast með því þegar það verður.
Annars skal ég ekki hafa þetta lengra í bili, skal ekki láta líða svona langt þangað til næst!! ég lofa!! Kveðja Berglingur (klínískur lyfjafræðingur)
»
24.12.2007 16:36:09 / berglingur
»
13.12.2007 19:16:54 / berglingur
Mamma og pabbi komu í heimsókn síðasta fimmtudag, flugu til London og keyrðu síðan hingað til Nottingham. Það var mjög notarlegt að fá þau, það var mikið verslað fyrst mamma þurfti að versla jólagjafir fyrir alla fjölskylduna, en það var líka slappað af og haft það gott. Á sunnudeginum gerðum við þó eitt sem mig hefur lengi dreymt um að gera... fórum til Liverpool á Bítlaslóðir. Við byrjuðum á að skoða Bítlasafnið sem mér fannst alveg frábært, við fengum svona headphones sem lýstu því sem við vorum að skoða og maður gat hlustað á lýsingar frá þessum tíma og hvernig fólk upplifði hann, mér fannst það allavega frábært. Eftir það var síðan farið í svona rútuferð um Liverpool og skoðað staði sem eru merkir í Bítlasögunni, eins og húsin sem þeir bjuggu í og staðinn sem John Lennon og Paul McCartney hittust fyrst, síðan var líka skoðað Penny Lane og Strawberry field og sagt af hvernig staðirnir tengdust þeim. Túrinn endaði síðan í Cavern Club þar sem Bítlarnir stigu fyrst á svið... allavega fannst mér þetta allt saman vera mjög merkilegt, að vera á stöðum þar sem Bítlarnir hafa actually verið á. Ég reyndar held að ég hafi fengið mest út úr þessum túr, mamma náði ekki að skilja allt sem fór fram þar sem hún er kannski ekki sú allra sleipasta í enskunni, og pabbi og Jóhannes eru kannski ekki miklir Bítlaáhugamenn. Síðan er næsta mál á dagskrá að ég er að fara að byrja að vinna á mánudaginn, ég er mjög spennt og kvíðin á sama tíma. Það verður frábært að byrja loksins að vinna, er alveg búin að fá nóg af því að vera atvinnulaus. Er búin að fá svona gróft plan um hvernig þetta kemur til með að vera, planið hljómar allavega mjög spennandi og ég kem til með að fá smá hugmynd um hvernig þetta allt saman gengur fyrir sig. Farin að hlakka geðveikt til!!! Segji kannski eitthvað meira frá þessu í næstu viku, þegar ég hef eitthvað að segja frá þar að segja. Síðan styttist líka í að við komum heim í jólafrí, lendum á miðnætti 21.des. Ég kem eitthvað til með að vinna í Lágmúla en annars ætla ég bara að eyða tímanum með fjölskyldu og vinum. Hlakka til að sjá ykkur Kv. Berglind
»
04.12.2007 22:46:23 / berglingur
Hvað er málið með þessa ofurkurteisi breta? Alls staðar sem maður kemur, hvort sem það er í súpermarkaðinn eða apótekið, alltaf er sagt við mann "Can I help you love" eða "Is there anything else for you sweetheart" ég meina sjáið þið þetta gerast á íslandi??? "Get ég aðstoðað þig elskan" maður myndi bara gapa, mig langar oft að segja ég er ekkert elskan þín. Síðan fyrir utan allt þetta "please" fólki finnst ég ábyggilega vera argasti dóni að vera alltaf að gleyma að segja please í tíma og ótíma á eftir öllu sem ég segji. Síðan er alltaf athugað hvort maður geti ekki örugglega sjálfur raðað í pokann, eða hvort maður þurfi hjálp við það "Are you ok with your packing" skil vel að það sé verið að spurja eldra fólkið að þessu.... ég meina af hverju ætti ég ekki að geta raðað sjálf í pokana mína!! Mér finnst þetta allavega vera mjög merkilegt allt saman, en greinilega eitthvað sem ég þarf að fara að venjast. Það er allt að verða jólalegt í Nottingham, miðbærinn að verða fallega skreyttur til að hjálpa manni að komast í jólaskapið. Hérna er samt ekki kveikt á neinum jólaljósum á daginn, ekki eins og heima, en hér er rafmagnið náttúrulega dýrara og hér fer ekki að dimma eins snemma svo það er kannski enginn tilgangur með því að hafa þetta kveikt. Maður nær samt að koma sér í smá jólafíling ef maður fer á röltið þegar fer að myrkva. Ég fór í bílatíma í dag, fannst alveg merkilegt hvað það var minna skrítið að keyra svona öfugt en ég hélt. Maður var samt svolítið upptekin af því að það væri allt öfugt að maður var að gleyma einföldu atriðunum eins og að skipta um gír og gefa stefnuljós... svona atriði sem koma automatískt hjá manni. Það sem maður þarf held ég mest að passa er vinstri hliðin á bílnum, þ.e. farþegamegin (bílstjóramegin á íslandi), maður er eitthvað svo óvanur að hafa svona mikið pláss þeim megin við sig, allavega var ég oft frekar nálægt kantinum. Síðan eru náttla hringtorgin alveg mögnuð, frekar skrítið að fara svona öfugann hring. Þetta gekk samt bara allt saman mjög vel, ég ætla samt í annan tíma í næstu viku svona til að vera alveg örugg áður en ég fer að keyra ein. Annars eru mamma og pabbi að fara að koma í heimsókn á fimmtudaginn, ætla að fljúga til London og keyra hingað til Nottingham. Það verður gaman að fá þau, ég hef svo rosalega gaman af því að taka á móti gestum. Þá hef ég líka smá félagskap og hef einhvern til að fara með í bæinn. Stefni að því að reyna að kaupa restina af jólagjöfunum svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af því á síðustu stundu. Ég segji annars nánar frá þeirri heimsókn síðar. Bless í bili Berglind
»
01.12.2007 12:36:15 / berglingur
Það má segja að þessi föstudagur hafi svo
sannarlega verið til frægðar! Gerðist bara allt á einum
degi.
Ég fékk sem sagt loksins lyfjafræðingsleyfið mitt hérna í
Bretlandi, má því loksins fara að kalla mig lyfjafræðing hérna.
Núna má ég sem sagt kalla mig lyfjafræðing í 2 löndum sem er mjög
skrítið. Ég er búin að bíða eftir þessu leyfi í rúmlega mánuð núna,
þeir voru alltaf með eitthvað vesen í sambandi við pappírana sem ég
skilaði inn, ekkert smá smámunasamir, en þetta er loksins
komið.
Svo er ég komin með vinnu, ég sem sagt tók vinnunni í Derby
þarna í afgreiðsluapótekinu. Ég held að það hafi verið rétt
ákvörðun hjá mér, fá pínu reynslu á að vinna í Bretlandi áður en ég
dembi mér í erfiðara starf. Það er s.s. talað um þetta sem
tímabundna stöðu sem lítur mjög vel út á CVinu mínu og með þessa
reynslu er mikið frekar að ég fái klíníska stöðu í haust og eins og
ég lít á það þá hefðu þau ekkert verið að bjóða mér þessa stöðu
nema ef þau væru að hugsa þetta til lengri tíma, væru ekkert bara
að gera mér einhvern greiða. Ég fæ annars sömu laun og ég hefði
annars fengið svo það er fínt, launin eru samt mun lægri en heima
en upp á móti kemur að skattarnir eru lægri og það er ódýrara að
lifa hérna.
Síðan skelltum við Jóhannes okkur út að borða á tyrkneskan
veitingastað um kvöldið með fólkinu á labbinu hans Jóhannesar, það
var verið að kveðja einn. Það er alltaf svo skemmtilegt að borða
svona framandi mat, hann var annars mjög góður. Síðan eftir matinn
fórum við með George sem er vinur Jóhannesar á labbinu og
kærustunni hans á pub og fengum okkur drykk með þeim, sem var mjög
kósí.
Síðan þegar við komum heim þá ákvað Jóhannes að gamni að prófa
nettenginguna frá Sky, þeir voru búnir að lofa öllu fögru því við
ætluðum að cancela áskriftinni.... og viti menn, allt í einu var
nettengingin farin að virka. Þannig að núna erum við loksins komin
með hraðari nettengingu.. JIBBY!!! Þannig að núna er smart síminn
líka kominn í gagnið, þannig að núna getiði hringt í okkur á sama
verði og þið hringið í heimasíma á íslandi, og við hringjum frítt í
heimasíma á íslandi!! Númerið er sem sagt: 4960527. Þannig að
endilega farið nú að vera dugleg að láta heyra í ykkur, núna er
engin afsökun að segja að það sé dýrt að hringja!!
Eins og ég sagði þá var þessi dagur fullur af góðum fréttum og
maður er ennþá að melta þetta allt saman. Ég hlakka allavega til að
heyra í ykkur.
Kveðja Berglind
»
29.11.2007 15:17:43 / berglingur
Nú er aldeilis mikið búið að gerast hjá mér og ég hef mikið til að hugsa um. Eins og ég var búin að segja frá þá fór ég í atvinnuviðtal fyrir vinnu sem klínískur lyfjafræðingur á vöktum. Þetta var ekkert smá viðtal og mér var stillt upp við vegg og látin svara þvílíkt mörgum erfiðum spurningum. Ég þurfti jafnvel að skoða eitt case og gefa komment á það, þvílíkt erfitt þegar maður er ekki búinn undir það, ég samt held að ég hafi svarað því ágætlega, þetta er víst bara standard að gera það í atvinnuviðtölum hérna úti til þess að sjá hvernig maður hugsar. Ég held að þetta viðtal hafi gengið svona sæmilega. Viðtalið gekk samt ekki betur en það að ég fékk ekki vinnuna, þau sögðu reyndar að það væri vegna þess að þeim fyndist ég ekki hafa næga reynslu til að sinna þessu starfi því það væri mjög krefjandi og ég þyrfti að bera mikla ábyrgð, og þau kysu að ég hefði meiri reynslu á að vinna í bretlandi áður en ég færi að vinna svona krefjandi starf á spítala. Þetta var samt ekki bara slæmt, því mér var samt sem áður boðið að fá tímabundið starf hjá þeim í afgreiðsluapótekinu, staða sem ég held að hafi eiginlega verið búin til fyrir mig, og þá gæti ég fengið reynslu sem yrði góð ef ég myndi sækja um aftur hjá þeim í sumar... það var víst Clive sem er forstöðumaður sjúkrahúsapóteksins sem bauð mér þetta, sem þýðir að honum hafi litist mjög vel á mig og hafi áhuga á að ég fái reynslu svo ég geti sótt seinna um stöðu sem klínískur lyfjafræðingur. Þannig að þetta var sigur út af fyrir sig. Síðan í gær sá ég að það var verið að auglýsa alveg eins stöðu og ég sótti um í Derby, nema á spítalanum hérna í Nottingham. Þannig að núna þarf ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að sækja um þá stöðu og fá þá kannski sömu svör og ég fékk í Derby, því það er satt, lyfjafræðingar frá íslandi hafa mjög takmarkaða klíníska reynslu svo maður væri alveg að henda sér í djúpu laugina með því að taka svona vinnu. Stóra spurningin er því... á ég að taka þessari vinnu í afgreiðsluapótekinu í Derby og öðlast reynslu sem gæti hjálpað mér síðar að fá stöðu sem klínískur lyfjafræðingur, og jafnvel reynslu sem mér veitir kannski ekki af. Eða á ég að sækja um stöðuna sem klínískur lyfjafræðingur hérna í Nottingham og taka sénsinn á því að þeim lítist betur á mig og ráði mig og þá kannski missa möguleikann á vinnunni í Derby????? Endilega kommentið á hvað ykkur finnst að ég eigi að gera, og hvað þið mynduð gera í mínum sporum. Kv. Berglind
»
24.11.2007 13:39:03 / berglingur
Um síðustu helgi komu Ragnheiður og Gauti í heimsókn til okkar, sem var náttúrulega frábært. Við leigðum bíl og sóttum þau á flugvöllinn í Manchester, Jóhannes keyrði eins og kóngur á öfugum vegarhelmingi, rosalega skrítið að keyra svona “vitlausu megin” . Við lentum í smá veseni á leiðinni til Manchester, fyrst var eitthvað slys á M1 (sem er hraðbraut á leiðinni) sem varð til þess að við vorum rosalega lengi á henni, síðan þegar við komum til Manchester var aftur slys á Ringroad (hraðbrautin sem fer á flugvöllinn) svo við vorum í vandræðum hvernig við ættum eiginlega að komast á flugvöllinn. Leiðin heim gekk sem betur fer vel, nema Gauti og Ragnheiður voru alltaf með hjartað í buxunum þegar Jóhannes fór í hringtorg (að þeim fannst öfugan hring) og héldu alltaf að við værum að fara að lenda í árekstri. Á laugardeginum var fínasta veður og ég sýndi þeim Beeston miðbæinn (því mér finnnst hann alltaf pínu skondinn) og svo fórum við í bæinn. Um kvöldið kíktum við svo út að borða sem var mjög áhugavert, allavega fyrir Ragnheiði sem sat við gluggan, soldið spes að sitja á veitingastað að borða þegar einhver grípur í gluggan fyrir utan hjá manni og ælir... Ragnheiði fannst það allavega ekki skemmtilegt! Eftir matinn kíktum við svo á pub, og fórum svo heim um 1 leytið (það loka allir staðir í Bretlandi svo rosalega snemma) Gauti reddaði leigubíl og bað hann um að keyra okkur “fyrir sunnan kirkjuna” á þessari fínu íslensku og leigubílsstjórinn var ekkert að átta sig á hvert hann átti að fara með okkur, sem betur fer gat Jóhannes útskýrt betur fyrir honum hvert við áttum að fara, ég meina hvernig gat hann ekki skilið hvar fyrir sunnan kirkjuna var, ég hélt að allir kynnu að tala íslensku! Á sunnudeginum var svo geðveik rigning, við létum það samt ekki stoppa okkur mikið og skelltum okkur í Toys R’ Us sem er ekkert smá stór, veit ekki hvað þessir íslendingar eru að monta sig. Þar náðum við öll að eyða slatta af peningum í jólagjafir og fórum svo bara heim að slappa af, því það er nú ekkert gaman að skoða neitt í rigningu. Á mánudeginum bættum við það síðan svo sannarlega upp og fórum aftur í bæinn að versla og skoða okkur um áður en við keyrðum síðan aftur til Manchester á flugvöllinn sem gekk mun betur í þetta skiptið. Ég reyndi mitt besta alla helgina að vera besti gestgjafi í heimi, þar sem þetta voru nú fyrstu gestirnir okkar, svona svo þau myndu nú hugsanlega vilja heimsækja okkur aftur. Ég held að það hafi líka gengið bara ágætlega hjá mér, allavega kvörtuðu þau ekkert! En svo önnur málefni... ég komst í annað viðtal fyrir þessa vinnu í Derby, þannig að þið sem hjálpuðuð mér með að krossleggja fingur hafið sannarlega gert ykkar gagn, nú þurfiði bara að krossleggja ennþá meira... svona til að tryggja mér þessa vinnu endanlega, ég fer í viðtal núna á fimmtudaginn (29.nóv) svo allir að hugsa vel til mín þá (nánar tiltekið klukkan 10.30)Við erum ennþá í veseni með þetta internet, við ætluðum að fá tengingu hjá Sky en það var ekki að ganga upp svo við gáfumst upp, ætlum að prófa Vodafone næst, það tekur trúlega 2 vikur eða svo (vonandi verður ekki vesen með það líka). Þannig að við erum ekki ennþá búin að tengja þennan Smart síma, erum bara með einhverja leiðindar bráðabirgðartengingu sem er alltaf að detta út. Ég bið annars að heilsa í bili, ég skal reyna að vera duglegri að skrifa svo þetta séu ekki alltaf svona langar færslur hjá mér . Kv. Berglind og Jóhannes
»
13.11.2007 21:26:19 / berglingur
Afsakið hvað það er búið að líða langur tími síðan ég skrifaði síðast, það er bara búið að vera eitthvað vesen með netið, breiðbandið er ekki ennþá orðið tengt hjá okkur, búið að taka geðveikt langan tíma!! PIRR PIRR Annars er lítið að frétta af mér, nema að ég fór í atvinnuviðtal á spítalann til Derby (15km fyrir utan Nottingham) í gær og leist bara rosalega vel á það. Þetta er staða sem klínískur lyfjafræðingur og ég myndi taka klínísku diplómuna með vinnunni (alveg eins og mig langar) Þannig að núna verða bara allir að krossleggja fingur með mér og vona að ég fái vinnuna!! Við fórum í matarboð til prófessorsins hans Jóhannesar á föstudaginn, sem var mjög skemmtilegt, ekkert smá frábært að fá að hitta fólk... þ.e. fyrir utan Jóhannes, ég er farin að fá fráhvarfseinkenni að fá ekki að hitta fólk!! Það voru allir á labbinu hans Jóhannesar sem mættu, samtals 15 manns, þetta var því frekar margt og maður náði því ekki að kynnast öllum. Mér þykir svolítið merkilegt að í hópnum hans Jóhannesar er bara einn breti... allt hitt eru "útlendingar" eins og Jóhannes. Það er mjög áhugavert samt að tala við fólk frá svona mismunandi stöðum og sjá hvað fólk getur verið mismunandi. Ég er að verða alveg geðveik á því að vera bara alltaf heima, ég myndi ekki meika að vera heimavinnandi húsmóðir!! Dagurinn hjá mér er nánast alltaf eins... vakna klukkan níu og horfi á Days of our lives og Guiding light (ég verð að hafa eitthvað svona annars myndi ég alltaf sofa fram að hádegi) síðan fer ég aðeins að laga til og þrífa íbúðina (ótrúlegt hvað ryk er fljótt að safnast upp, ég get ekki ímyndað mér hvernig íbúðin væri ef ég væri ekki alltaf að þrífa). Þar á eftir fæ ég mér eitthvað fljótlegt í hádegismat og kíki kannski eitthvað smá út, annað hvort í göngutúr eða fer að versla í matinn eða eitthvað annað sem vantar fyrir heimilið. Eftir það fer ég að lesa í klínískri lyfjafræði, hita mig aðeins upp áður en ég fer að vinna, er búin að vera alveg rosalega dugleg að lesa, ótrúlegt en satt... enda ekki erfitt þegar maður hefur ekkert annað að gera. Síðan er ég bara að lesa þangað til Jóhannes kemur heim af labbinu, sem er yfirleitt um sjö leitið, og þá fer ég að elda matinn og svo horfa á sjónvarpið eða eitthvað, stundum fer ég jafnvel að lesa meira ef ég er í stuði. Ég er búin að vera mjög dugleg að elda, er alltaf að prófa einhverjar nýjar uppskriftir, er t.d. aldrei búin að elda sama réttinn 2svar síðan ég kom... sem er bara skemmtilegt, ljótt að segja það en það er hápunktur dagsins að elda matinn, þá hef ég allavega eitthvað að gera í einhvern tíma...... Spennandi ekki satt, ég hef fulla trú á að það séu margir sem öfunda mig... NOT (jú var mjög sweet í smá tíma en verður MJÖG þreytandi til lengdar) Síðan eru Ragnheiður og Gauti að koma í heimsókn til okkar á föstudaginn! það verður æðislegt!! Sýna þeim Nottingham og bara hafa gaman. Annars skal ég keep you posted með vinnuna mína... ekki gleyma allir að krossleggja fingur og vona að ég fái hana!!!! Heyrumst síðar... Kv. Berglingur
»
30.10.2007 16:28:49 / berglingur
Jæja þá er loksins komið að því að segja eitthvað... Nú er maður loksins fluttur til Nottingham, það hlaut að koma að því. Íbúðin er rosalega fín, hún er svona lítil og sæt og ekki með breskum brag sem er mjög mikilvægt, það er parket á öllum aðal gólfum, flísar á baðherberginu (ekki teppi eins og á flestum breskum baðherbergjum) svo er reyndar teppi á gólfunum í svefnherbergjunum. Ég er búin að vera að vinna í því að koma okkur almennilega fyrir, setja smá skipulag á íbúðina. Við erum búin að kaupa hillur í stofuna og skrifborð í gestaherbergið svo Jóhannes geti notað það sem vinnuherbergi (svona svo ég fái að hafa hann heima einhvertíma). Svo er maður bara heimavinnandi húsmóðir eins og er, allavega þangað til lyfjafræðingsleyfið mitt gengur í gegn hérna úti. Ég er aðeins farin að líta í kringum mig með vinnu, ég er búin að sjá það út að mig langar mest til að vinna á spítala (sem ég vissi eiginlega fyrir). Apótekin hérna eru ekkert sérstaklega spennandi, þetta eru allt svona risastórar sjoppur með smá horni fyrir lyfseðilsskyldu lyfin. Reyndar er þjónustan mikið betri en heima, hérna fær maður almennilegar upplýsingar um lyfin þegar maður er að kaupa þau, maður er spurður út í hvort maður sé með einhverja sjúkdóma sem eru frábendingar og manni sagt hvernig sé best að taka lyfin... smá svona lyfjafræðileg umsjá sem er svo mikið í týsku heima á klakanum. Samt sem áður finnst mér þetta allt saman líta mjög óspennandi út. Það er því vonandi að ég fái vinnu við klíníska lyfjafræði á spítala eins og mig langar til, þó það líti ekki út fyrir að það sé margt í boði í þeim geira eins og er. Ég kem svo til með að gefa upp símanúmerin hjá mér þegar þau verða komin á hreint, ég er ekki ennþá komin með gsm númer og við erum ennþá að bíða eftir almennilegri nettengingu svo við getum tengt smart símann (þá verður ódýrt að hringja í okkur). Síðan ætla ég að reyna að vera dugleg að skrifa eitthað á þetta blogg svo þið sem viljið fylgjast með okkur getið lesið allt hérna. Heyrumst svo fljótlega Kv. Berglind
»
01.10.2007 20:24:37 / berglingur
Jæja ég er búin að panta mér far til Nottingham.... ég fer 15 okt!!! þá byrja ég að blogga af einhverju viti, þangað til þá er ég bara á fullu að vinna og taka mig til. Heyrumst síðar Kv. Berglingur
»
10.06.2007 18:41:15 / berglingur
Hérna ætlum við Jóhannes að blogga frá Nottingham, allavega
ég
Kemur meir síðar þegar ég hef eitthvað að segja
kveðja Berglingur
»
|
|